Í gær héldum við árlegan skólafund þar sem nemendur og starfsfólk koma saman á sal skólans og ræða áskoranir almennt í skólastarfinu eða þær sem viðkoma skólanum okkar.
Verkefnið okkar að þessu sinni var að ræða gervigreind.
Undanfarin ár hafa áhrif gervigreindar stóraukist í samfélaginu okkar. Spjallmenni hafa tekið yfir þjónustuver fyrirtækja, auglýsingar eru gerðar í gervigreind, heilu ritgerðirnar og fræðigreinarnar eru skrifuð af gervigreind.
Sigurður Már Sigurðsson, sem vinnur við stafræna markaðssetningu og fyrrum nemandi FSH, útbjó kynningar- og fræðslumyndband sem horft var á og í framhaldinu var hópavinna þar sem eftirfarandi spurningum var svarað.
Hvað ber að varast þegar kemur að gervigreind?
Hvernig má nýta gervigreind í skólastarfi? Eða hvernig viljum við geta nýtt hana í skólastarfi?
Hvað á ekki að nota gervigreind í þegar kemur að skólastarfi? og
Hvað eru akademísk heilindi og hvernig tengjast þau gervigreind?
Starfsfólk Framhaldsskólans á Húsavík mun nýta þessi svör til að marka stefnu skólans um notkun gervigreindar með aðkomu nemenda.
Hér koma nokkur skemmtileg brot úr fræðslumyndbandinu frá Sigurði Má.




