Húslestur 17.08.2026

6 tbl. 38. árg. mánudagurinn 17. ágúst 2026. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Arna Ýr Arnarsdóttir

Kæru nemendur, velkomin til starfa á nýju skólaári!

Húslestur hefur ýmsar upplýsingar að geyma. Lesið hann vandlega. Lesið einnig vel um brautalýsingar og áfanga á vef skólans. Þá er oft ýmsar upplýsingar og tilkynningar að finna á tilkynningatöflu við nemendainngang. Nemendur munu einnig fá sendar upplýsingar í tölvupósti og mikilvægt að fylgjast vel með.

Skrifstofa skólans opnar kl. 8:15 á daginn.

Haustönn hefst með skólasetningu í sal skólans miðvikudaginn 19. ágúst 2026 klukkan 10:00, örtímar hefjast svo að henni lokinni klukkan 10:30, örtímatöflu má sjá í þessum Húslestri. Kennsla hefst svo samkvæmt stundatöflu, fimmtudaginn 20. ágúst klukkan 08:15.

Starfsbraut byrjar miðvikudaginn 19. ágúst klukkan 08:15.

Athugið að skólagjöld þurfa að hafa verið greidd til þess að hægt sé að opna Innu.
Varðandi dagskrá annarinnar má nefna að vörðuvika verður haldinn 14. - 18. september. Próf verða frá 8. - 17. desember og önninni lýkur með prófsýningu 18. desember.

Starfsfólk skólans
Skólameistari: Halldór Jón Gíslason. Viðtalstímar eftir samkomulagi.
Áfanga- og fjármálastjóri: Arna Ýr Arnarsdóttir. Viðtalstímar eftir samkomulagi
Námsráðgjafi: Karen Elsu Bjarnadóttir. Viðtalstímar verða auglýstir síðar.
Skólahjúkrunarfræðingur: Díana Jónsdóttir. Viðtalstímar á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13-14.
Skólaritari: Guðný Margrét Eyjólfsdóttir. Ritari er við kl. 8:15-15:00 mánudaga til fimmtudaga, föstudagar frá 8:15-12:00
Umsjónarmaður húsnæðis: Ingvar Berg Dagbjartsson.
Umsjónarmaður tölvukerfis: Róbert Bjarnason. Almennur viðverutími á mánud. kl. 10-11 og fimmtud. kl. 10-11.

Kennarar á haustönn 2026
Áslaug Guðfinna Friðfinnsdóttir: Danska.
Ásta Svavarsdóttir: Íslenska.
Björgvin Friðbjarnarson: Efnafræði, stærðfræði og líffræði.
Elsa Björk Skúladóttir: Starfsbraut.
Eva Margrét Árnadóttir: Efnafræði og eðlisfræði.
Harpa Ásgeirsdóttir: Íþróttir.
Karen Elsu Bjarnadóttir: Félagsvísindi og námstækni.
Karolína Kristín Gunnlaugsdóttir: Fjármál, saga og lífsleikni.
Rakel Dögg Hafliðadóttir: Sálfræði, stærðfræði, afbrotafræði og stjórnmálafræði.
Sigurður Narfi Rúnarsson: Rafíþróttir og starfsbraut.
Smári Sigurðsson: Enska og þýska.

Allir kennarar hafa viðtalstíma og verða þeir auglýstir síðar á töflu á nemendagangi.

Helga Björg Sigurðardóttir Heilsunudd.

Leiðbeinendur
Anna Guðmundsdóttir
Arna Þórarinsdóttir
Sigurður Narfi Rúnarsson

Efnisyfirlit.

1. Umsjónakennarar og umsjónatímar
2. Inna og innuaðgangursjónakennarar og umsjónatímar
3. Húsnæði
4. Skólareglur
5. Töflubreytingar
6. Örtímatafla
7. Íþróttir
8. Kennsluvefur
9. Heilsunudd
10. Aðrar upplýsingar