Húslestur 27.11.2020

5.tbl. 31.árgangs föstudaginn 27. nóvember 2020. Ritstj. og ábm. Halldór Jón Gíslason.

Efni:

1. Fjórða fjarvistartalning annarinnar. Talið verður í upphafi næstu viku. Viðmið 90%. Þeir sem eru undir viðmiðinu fá sent bréf frá skólanum eða forráðamenn þeirra hafi þeir ekki náð 18 ára aldri.

Hér má sjá mætingarreglur FSH.

2. Vali fyrir vorönn 2021 er lokið. Þeim, sem hugsanlega gleymdu að velja er bent á að hafa samband við aðstoðarskólameistara.

3. Próftafla haustannar 2020 telst nú endanleg. Lokapróf verða í formi heimaprófa á haustönn 2020. Nemendur verða ekki kallaðir inn í skólann til þess að taka próf.

4. Frestur til að sækja um sérúrræði í prófum rann út 23. nóvember. Við bendum ykkur á að hafa samband við námsráðgjafa til að fá ráðgjöf vegna prófanna. Einnig bendum við á að búið er að lengja þann tíma sem nemendur hafa til þess að taka próf. Nú fá allir nemendur tvo tíma til þess að leysa prófið. Ekki er verið að lengja prófin sjálf. Einungis þann tíma sem nemendur hafa til þess að leysa prófin.

5. Innritun fyrir vorönn 2021 lýkur 30. nóvember. Þeir, sem hafa valið í Innu fyrir næstu önn þurfa ekki að innrita sig sérstaklega. Bendum á að hægt verður að sækja um í fjarnám til 7.janúar 2021.

 6. Brautaskipti. Nemendur, sem vilja skipta um braut, t.d. af almennri braut yfir á stúdentsbrautir, þurfa að hafa samband við aðstoðarskólameistara sem allra fyrst.

7. Kennsla vorannar 2021 hefst þriðjudaginn 5. janúar. Fyrirkomulag verður tilkynnt nemendum síðar. Töflubreytingar verða auglýstar í fyrsta Húslestri næsta árs.