Umsjón V20

Umsjónarkennarar:

Námsráðgjafi er talsmaður nemenda og kallar nemendur í viðtal þegar þurfa þykir. Að öðru leyti eru umsjónarkennarar sem hér segir:

Auður Jónasdóttir Starfsbraut.
Gunnar Baldursson Nemendur á náttúruvísindabraut (auk útskriftarnema). Viðtalstímar auglýstir síðar.
Rakel Dögg Hafliðadóttir Nemendur á félags- og hugvísindabraut, fjarnemar og grunnskólanemar (auk útskriftarnema). Viðtalstímar auglýstir síðar.
Elín Rúna Backman Nemendur á almennri braut og opinni stúdentsbraut (auk útskriftarnema). Viðtalstímar auglýstir síðar.
Halldór Jón Gíslason Útskriftarnemar og nemendur á ótilgreindri braut. Verður í fæðingarorlofi í upphafi annar. Á meðan eru nemendur í umsjón hjá umsjónakennara viðkomandi brautar. Viðtalstímar eftir samkomulagi mánudag-fimmtudag kl. 8:15-12.

Umsjón
Umsjónarkennarar taka viðtöl á hverri önn við nemendur undir 18 ára aldri þar sem farið er yfir stöðuna í náminu, líðan í skólanum og aðra þætti.

Val
Drög að valframboði fyrir næstu önn munu liggja fyrir um mánaðamót janúar/febrúar og geta nemendur sent aðstoðarskólameistara tölvupóst á gunnar@fsh.is með ábendingum um hvaða áfanga þarf að kenna á næstu önn. Þetta þýðir að vinna við námsáætlun og val fyrir næstu önn hefst snemma á önninni og er áætlaður u.þ.b. mánuður í þessa vinnu. Vali fyrir haustönn 2020 verður að ljúka í síðasta lagi 20. mars. Ætlast er til að nemendur búi til námsáætlun og velji í Innu undir leiðsögn umsjónarkennara.

Athugið að skólanámskrá er á heimasíðu skólans. Þar eru m.a. upplýsingar um alla áfanga og brautir skólans, námsmat, fjarvistakerfið o.fl.

Þeir sem hyggja á útskrift við skólaslit vorið 2020 eru beðnir að hafa samband við aðstoðarskólameistara sem allra fyrst til að fara yfir námsferla sína og tryggja að allt sé í lagi.

Inna og Innuaðgangur