Húslestur 28.04.2023

5. tbl. 35. árg. föstudaginn 28. apríl 2023. Ritstj. og ábm. Halldór Jón Gíslason

Efni:

1. Fjórða Fjarvistartalning annarinnar. Viðmiðið er 90 % mæting að teknu tilliti til veikinda og leyfa. Haft verður samband við þá nemendur sem eru undir í mætingu. Mætingarreglur FSH.

2. Vali fyrir haustönn 2023 lauk 24.mars síðastliðinn. Þeim sem hafa ekki valið, en vilja vera í námi á næstu önn, er bent á að hafa samband við aðstoðarskólameistara sem allra fyrst. Hér má sjá valframboð fyrir haustönn 2023.

3. Próftafla vorannar 2023 telst nú endanleg. Prófareglur FSH má sjá HÉR. Athugið að í Innu getur hver nemandi séð upplýsingar um þau lokapróf sem hann er sjálfur skráður í.

4. Innritun eldri nemenda í dagskóla, fæddra árið 2004 eða fyrr, fyrir haustönn 2023 hófst 27. apríl og lauk 1. júní. Ennþá er opið fyrir umsóknir eldri nemenda í fjarnám og í heilsunudd. Opið fyrir umsóknir í fjarnám til 31. ágúst 2023. Nemendur á vorönn 2023, sem hafa valið í Innu fyrir næstu önn, þurfa ekki að innrita sig sérstaklega.

5. Brautaskipti: Nemendur, sem vilja skipta um braut, t.d. af almennri braut yfir á stúdentsbraut, þurfa að hafa samband við aðstoðarskólameistara sem allra fyrst.

6. Við viljum þakka nemendum okkar kærlega fyrir góð störf á önninni og óska ykkur góðs gengis í lokanámsmati annarinnar áður en við höldum út í sumarið.