Forsjáraðilar nemenda yngri en 18 ára geta skráð veikindi barns síns beint í Innu. Skráningin berst skólanum sem veikindatilkynning og er afgreidd þar.
Innskráning
Forsjáraðili skráir sig inn í Innu með rafrænum skilríkjum. Aðgangur forsjáraðila að námsupplýsingum barns yngra en 18 ára byggir á skráningu í Þjóðskrá og verður til sjálfkrafa.
Ef innskráning gengur ekki er gott að athuga hvort rafrænu skilríkin séu virk og ekki útrunnin.
Skrá veikindi
Hægt er að opna veikindaskráninguna á tvo vegu.
- Af forsíðu: Smellið á SKRÁ VEIKINDI í listanum hægra megin á forsíðunni.
- Úr valmynd: Smellið á örina við prófílmyndina efst til hægri og veljið Skrá veikindi.

Eftir það er skráningin fyllt út og staðfest.
Nemendur 18 ára og eldri
Þegar nemandi verður 18 ára fellur aðgangur forsjáraðila sjálfkrafa niður. Nemandinn getur þá sjálfur veitt aðstandanda aðgang að Innu:
- Nemandi skráir sig inn í Innu með rafrænum skilríkjum.
- Smellir á prófílmyndina efst til hægri og velur Ég.
- Opnar flipann Aðstandendur.
- Velur Já undir Aðgangur við nafn aðstandandans.
Eftir það getur aðstandandinn meðal annars skráð veikindi fyrir nemandann.