Inna og innuaðgangur H21

Aðgangur nemenda að skólakerfinu Innu
Aðgangur nemenda að Innu er virkjaður þegar þeir hafa greitt skólagjöld. Slóðin er http://www.inna.is/Nemendur. Nemendur nota Íslykil sem sótt er um á http://www.island.is. eða rafræn skilríki til innskráningar. Þegar farið er inn í Innu kemur stundataflan upp. Upplýsingar um námsferil, einkunnir, fjarvistir o.fl. fá nemendur með því að smella á nafnið sitt fyrir ofan stundatöfluna. Hægt er að prenta út stundatöflu, námsferil o.fl. úr Innu.

Athugið að til að komast inn á Innu þurfið þið aðgang að tölvukerfi skólans. Hann fáið þið hjá Aðalgeiri Sævari kerfisstjóra. Viðverutími Aðalgeirs er kl. 10-11 á mánudögum og fimmtudögum kl. 10-11 á skrifstofu á kennaragangi.

Vinsamlega athugið hvort persónuupplýsingar í Innu eru réttar og breytið þeim ef við á, t.d. heimilisfangi ef aðsetur er annað en lögheimili og símanúmeri ef það hefur breyst.

Hér má finna upplýsingar um Innu

Um húsnæði skólans