Húslestur 25.11.2021

5.tbl. 32.árgangs fimmtudaginn 25. nóvember 2021. Ritstj. og ábm. Halldór Jón Gíslason.

Efni:

1. Fjórða fjarvistartalning annarinnar. Talið verður í upphafi næstu viku. Viðmið 90%. Þeir sem eru undir viðmiðinu fá sent bréf frá skólanum eða forráðamenn þeirra hafi þeir ekki náð 18 ára aldri.

Hér má sjá mætingarreglur FSH.

2. Vali fyrir vorönn 2022 er lokið. Þeim, sem hugsanlega gleymdu að velja er bent á að hafa samband við aðstoðarskólameistara.

3. Próftafla haustannar 2021 telst nú endanleg. Lokapróf verða með hefðbundnum hætti. Staðnemar taka próf í skólanum.

4. Frestur til að sækja um sérúrræði í prófum rann út 15. nóvember. Við bendum ykkur á að hafa samband við námsráðgjafa til að fá ráðgjöf vegna prófanna.

5. Innritun fyrir vorönn 2022 lýkur 30. nóvember. Þeir, sem hafa valið í Innu fyrir næstu önn þurfa ekki að innrita sig sérstaklega. Bendum á að hægt verður að sækja um í fjarnám til 14.janúar 2022.

6. Brautaskipti. Nemendur, sem vilja skipta um braut, t.d. af almennri braut yfir á stúdentsbrautir, þurfa að hafa samband við aðstoðarskólameistara sem allra fyrst.

7. Kennsla vorannar 2022 hefst þriðjudaginn 4. janúar. Fyrirkomulag verður tilkynnt nemendum síðar. Töflubreytingar verða auglýstar í fyrsta Húslestri næsta árs.