Þjónusta

Á skrifstofu skólans fer fram öll almenn afgreiðsla. Skrifstofan er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 8:15-15:00 og á föstudögum frá kl. 08:15-13:00.

Bókasafn skólans Safnið er opið á meðan kennsla stendur yfir í skólanum, frá mánudegi-föstudags. Flestar bækur eru til útláns, en ýmsar handbækur eru aðeins lánaðar á lesstofu.

Námsráðgjafi er til viðtals fyrir nemendur og forráðamenn þeirra sem hér segir: Mánudag: 08:10-12:10, Þriðjudag til fimmtudags frá 12:20-14:40 og föstudaga frá 08:10-12:10.

Skólahjúkrunarfræðingur er til viðtals fyrir nemendur skólans tvo daga í viku, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 8:30-10:30.

Félagsmála- og forvarnafulltrúi er nemendum til liðsinni í félagslífi þeirra og skipuleggur forvarnastarf skólans. Hann er til viðtals fyrir nemendur og foreldra eftir samkomulagi

Matstofa nemenda er í kjallara skólans, þar selja þeir léttar veitingar í frímínútum og í hádegishléi. Þá geta nemendur skólans einng keypt hádegismat í mötuneyti grunnskólans.Tímabundið hefur þessi þjónusta verið afnumin.

Styrkir til nemenda í Norðurþingi sem búsettir eru utan Húsavíkur
Sveitarstjórn Norðurþings hefur samþykkt eftirfarandi reglur um styrki til nemenda sem búsettir eru í Norðurþingi utan Húsavíkur og stunda nám við Framhaldsskólann á Húsavík. Sjá hér.