Húslestur 2023

10.tbl. 35.árgangs fimmtudaginn 30.nóvember 2023. Ritstj. og ábm. Halldór Jón Gíslason

Efni:

1. Fjórða fjarvistartalning annarinnar. Talið verður á morgun, föstudag. Viðmið 90%. Þeir sem eru undir viðmiðinu fá sent bréf frá skólanum eða forráðamenn þeirra hafi þeir ekki náð 18 ára aldri.

Hér má sjá mætingarreglur FSH.

2. Vali fyrir vorönn 2024 er lokið. Þeim, sem hugsanlega gleymdu að velja er bent á að hafa samband við aðstoðarskólameistara.

3. Próftafla haustannar 2023 telst nú endanleg. Prófareglur FSH má sjá HÉR. Athugið að í Innu getur hver nemandi séð upplýsingar um þau lokapróf sem hann er sjálfur skráður í.

4. Frestur til að sækja um sérúrræði í prófum rann út 13. nóvember. Við bendum ykkur á að hafa samband við námsráðgjafa til að fá ráðgjöf vegna prófanna.

5. Innritun í dagskóla fyrir vorönn 2024 lýkur í dag 30. nóvember. Þeir sem hafa valið í Innu fyrir næstu önn þurfa ekki að innrita sig sérstaklega. Bendum á að hægt verður að sækja um í fjarnám til 12.janúar 2023.

6. Brautaskipti. Nemendur, sem vilja skipta um braut, t.d. af almennri braut yfir á stúdentsbrautir, þurfa að hafa samband við aðstoðarskólameistara sem allra fyrst.

7. Kennsla vorannar 2024 hefst fimmtudaginn 4. janúar með örtímum. Tímasetning þeirra verður tilkynnt nemendum síðar. Töflubreytingar verða auglýstar í fyrsta Húslestri næsta árs.