Húsnæði V24

Húsnæði skólans
Í kennaraálmu eru skrifstofur skólameistara, aðstoðarskólameistara, námsráðgjafa og skólahjúkrunarfræðings, kennarastofa og vinnuherbergi kennara. Skrifstofa skólans er framan við kennaraálmu og þar hefur ritari og fjármálastjóri aðsetur. Umsjónarmaður húsnæðis hefur aðstöðu í herbergi gegnt skrifstofu ritara. Nemendur eru beðnir að virða viðtalstíma kennara. Notfærið ykkur pósthólf þeirra sem eru í kennaraálmu. Þau er sérstaklega ætluð fyrir nemendur sem þurfa að koma skilaboðum til kennara eða skila verkefnum. Aðstaða nemenda, t.d. matar- og setustofa, er í kjallara í aðalkennsluálmu.

Kennslustofurnar
Stofur 1, 2, 3, 4 og 5 eru á efri hæð í aðalkennsluálmu.
Stofur 7, 8 og 9 (raungreinastofa) eru á jarðhæð í kennsluálmu, stofa 7 næst anddyri en stofa 9 fjærst.
Stofur 12 (rafíþróttastofa) og 13 (myndmenntastofa) eru í kjallara kennaraálmu.
Stofa 10 (NEF) og 11 (kvikmyndastofa) er fyrir ofan nemendainngang.
Stofa ÍÞ er í íþróttahúsi.
Bókasafn og aðstaða til náms er nú staðsett í miðrými kennsluálmu.

Á vorönn 2024 verða stofur 7 og 8 endurnýjaðar. Það hefur í för með sér ákveðið rask sem við reynum að lágmarka fyrir nemendur og starfsfólk. Kennsla verður færð upp í stofu 1, 10 og 11.

Skólasóknarreglur

Skólareglur V24