Fara í efni

Húslestur 03.04.2023

4. tbl. 35. árgangur mánudagurinn 3. apríl 2023. Ritstj. og ábm. Halldór Jón Gíslason

1. Þriðja fjarvistatalning annarinnar. Viðmiðið er 90 % mæting að teknu tilliti til veikinda og leyfa. Haft verður samband við þá nemendur sem eru undir í mætingu. Mætingarreglur FSH.

2. Vali fyrir haustönn 2023 lauk 24.mars síðastliðinn. Þeim sem hafa ekki valið, en vilja vera í námi á næstu önn, er bent á að hafa samband við aðstoðarskólameistara sem fyrst. Hér má sjá valframboð fyrir haustönn 2023.

3. Frestur til þess að gera athugasemd við próftöflu vorannar rann út 25. mars síðastliðinn. Próftafla telst nú endanleg. Hér má sjá próftöflu vorannar 2023. Prófareglur FSH má sjá HÉR. Athugið að í Innu getur hver nemandi séð upplýsingar þau lokapróf sem hann er sjálfur skráður í.

4. Nemendum, sem þjást af prófkvíða eða telja sig þurfa á sérúrræðum að halda við fyrirlögn prófa, er bent á að hafa samband við námsráðgjafa sem allra fyrst og alls ekki síðar en 28. apríl.

5. Umsókn um einingar fyrir félagsstörf. Hægt er að sækja um einingar fyrir félagsstörf skv. reglum um námsmat. Nemendum er bent á að kynna sér reglurnar vel! Sótt er um í tölvupósti til aðstoðarskólameistara. Umsóknarfrestur er til 28. apríl.

6. Innritun eldri nemenda fyrir haustönn 2023 hefst 27. apríl og lýkur 1. júní. Nemendur á vorönn 2023, sem hafa valið í Innu fyrir næstu önn, þurfa ekki að innrita sig sérstaklega.

7. Brautaskipti: Nemendur, sem vilja skipta um braut, t.d. af almennri braut yfir á stúdentsbraut, þurfa að hafa samband við aðstoðarskólameistara sem allra fyrst.

Getum við bætt efnið á síðunni?