Húslestur 16.08.2023

6.tbl. 35.árg. þriðjudaginn 16. ágúst 2023. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Halldór Jón Gíslason

Velkomin til starfa á nýju skólaári!

Húslestur hefur ýmsar upplýsingar að geyma. Lesið hann vandlega. Lesið einnig vel um brautalýsingar og áfanga á vef skólans. Þá er oft ýmsar upplýsingar og tilkynningar að finna á tilkynningatöflu við nemendainngang.

Skrifstofa skólans opnar kl. 8:10 á daginn.

Haustönn hefst með skólasetningu í sal skólans fimmtudaginn 17. ágúst 2023 klukkan 10:00, örtímar hefjast svo að henni lokinni klukkan 10:30, örtímatöflu má sjá í þessum Húslestri. Kennsla hefst svo samkvæmt stundatöflu, mánudaginn 21. ágúst 2023.

Starfsbraut byrjar mánudaginn 21. ágúst klukkan 08:10.

Athugið að skólagjöld þurfa að hafa verið greidd til þess að hægt sé að opna Innu. Varðandi dagskrá annarinnar má nefna að vörðuvika verður haldinn 25.september-29.september. Próf verða frá 7. desember til 15. desember og önninni lýkur með prófsýningu 19. desember.

Starfsfólk skólans
Skólameistari: Valgerður Gunnarsdóttir. Viðtalstímar eftir samkomulagi.
Aðstoðarskólameistari: Halldór Jón Gíslason. Viðtalstímar eftir samkomulagi mánudag-fimmtudags kl. 8:15-12:00.
Námsráðgjafi: Elín Pálmadóttir. Viðtalstímar verða auglýstir síðar.
Skólahjúkrunarfræðingur: Díana Jónsdóttir. Viðtalstímar á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13-14.
Ritari og fjármálastjóri: Arna Ýr Arnarsdóttir. Ritari er við kl. 8:10-15 mánudaga til fimmtudaga, föstudagar frá 8:10-12.
Umsjónarmaður húsnæðis: Gunnar Þór Guðmundsson.
Umsjónarmaður tölvukerfis: Aðalgeir Sævar Óskarsson. Almennur viðverutími á mánud. kl. 10-11 og fimmtud. kl. 10-11.

Kennarar á haustönn 2023

Ásta Svavarsdóttir; Íslenska.
Björgvin Friðbjarnarson; Líffræði, efnafræði og stærðfræði
Elín Pálmadóttir Félagsvísindi og íþróttir.
Elsa Björk Skúladóttir; Starfsbraut
Eva Margrét Árnadóttir; Efnafræði, eðlisfræði og stærðfræði.
Hildur Eva Guðmundsdóttir; Danska
Rakel Dögg Hafliðadóttir; Sálfræði, félagsvísindi og lífsleikni.
Sigurður Narfi Rúnarsson; Rafíþróttir, fablab og starfsbraut.
Smári Sigurðsson Enska; þýska
Valdimar Stefánsson; Saga, heimspeki.

Allir kennarar hafa viðtalstíma og verða þeir auglýstir síðar á töflu á nemendagangi.

Helga Björg Sigurðardóttir Heilsunudd.

Leiðbeinendur
Alexia Annisius Askelöf
Anna Guðmundsdóttir

Efnisyfirlit.

  1. Umsjónakennarar og umsjónatímar
    2. Inna og innuaðgangur
    3. Húsnæði
    4. Skólareglur
    5. Töflubreytingar
    6. Örtímatafla
    7. Íþróttir
    8. Kennsluvefur
    9. Heilsunudd
    10. Aðrar upplýsingar