Húslestur 06.01.2020

1. tbl. 30. árg. mánudaginn 6. janúar 2020. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Halldór Jón Gíslason

Velkomin til starfa á nýju skólaári!

Húslestur hefur ýmsar upplýsingar að geyma. Lesið hann vandlega. Lesið einnig vel um brautalýsingar og áfanga á vef skólans. Þá er oft ýmsar upplýsingar og tilkynningar að finna á tilkynningatöflu við nemendainngang.

Skrifstofa skólans opnar kl. 8:00 mánudaginn 6. janúar

Vorönn hefst á því að allir nemendur mæta í örtíma kl. 12:00 mánudaginn 6. janúar: Kennarar fara þar yfir kennsluáætlun vorannar með nemendum og útskýra efni áfangans fyrir nemendum. Örtímatöflu er að finna í hlekk hér til hliðar. Nýnemar nálgast stundatöflu vorannar hjá ritara. Aðrir finna stundatöfluna sína í Innu. Örtímataflan verður hengd upp á tilkynningatöflu ásamt stokkatöflu.

Athugið að skólagjöld þurfa að hafa verið greidd til þess að hægt sé að opna Innu. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá kl. 08:15 þriðjudaginn 7. janúar. Varðandi dagskrá annarinnar má nefna að vörðuvika verður haldinn 3.febrúar-7.febrúar. Próf verða frá 8. til 20. maí og önninni lýkur með útskrift þann 23. maí.

Starfsfólk skólans
Skólameistari: Valgerður Gunnarsdóttir. Viðtalstímar eftir samkomulagi.
Aðstoðarskólameistari: Halldór Jón Gíslason. Viðtalstímar eftir samkomulagi mánudag-fimmtudags kl. 8:15-12.
Gunnar Baldursson leysir Halldór Jón af á meðan hann er í fæðingarorlofi fram í mars.
Námsráðgjafi: Rakel Dögg Hafliðadóttir. Viðtalstímar verða auglýstir síðar.
Skólahjúkrunarfræðingur: Díana Jónsdóttir. Viðtalstímar á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13-14.
Ritari og fjármálastjóri: Arna Ýr Arnarsdóttir. Ritari er við kl. 8-16 mánudaga til föstudags.
Umsjónarmaður húsnæðis: Guðrún Reynisdóttir.
Umsjónarmaður tölvukerfis: Aðalgeir Sævar Sigurgeirsson. Almennur viðverutími á mánud. kl. 10-11 og fimmtud. kl. 10-11.

Kennarar á vorönn 2020

Auður Jónasdóttir Starfsbraut.
Ásta Svavarsdóttir Íslenska.
Elín Rúna Backman Stærðfræði, líffræði og danska.
Gunnar Baldursson Eðlisfræð, efnafræði, umhverfis- og auðlindafræði.
Halla Rún Tryggvadóttir Þýska
Knútur Arnar Hilmarsson Stærðfræði.
Rakel Dögg Hafliðadóttir Sálfræði, aðferðarfræði og næringarfræði.
Selmdís Þráinsdóttir Útivist, félagsvísindi og íþróttir
Sigurður Narfi Rúnarsson Hugur og hönnun, starfsbraut.
Unnur Sigurðardóttir Enska
Valdimar Stefánsson Landafræði; saga.

Allir kennarar hafa viðtalstíma og verða þeir auglýstir síðar á töflu á nemendagangi.

Umsjón V20