5. tbl. 38. árg. miðvikudaginn 29. apríl 2026. Ritstj. og ábm. Arna Ýr Arnarsdóttir
1. Fjórða Fjarvistartalning annarinnar. Viðmiðið er 90 % mæting að teknu tilliti til veikinda og leyfa. Haft verður samband við þá nemendur sem eru undir í mætingu. Mætingarreglur FSH.
2. Vali fyrir haustönn 2026 lauk 29.mars síðastliðinn. Þeim sem hafa ekki valið, en vilja vera í námi á næstu önn, er bent á að hafa samband við áfangastjóra sem allra fyrst. Hér má sjá valframboð fyrir haustönn 2026.
3. Próftafla vorannar 2026 telst nú endanleg. Prófareglur FSH má sjá HÉR. Athugið að í Innu getur hver nemandi séð upplýsingar um þau lokapróf sem hann er sjálfur skráður í.
4. Innritun eldri nemenda í dagskóla fyrir haustönn 2026 hófst 13. mars og lýkur 26.maí.
Opið er fyrir umsóknir í fjarnám til 1. september 2026.
Nemendur á vorönn 2026, sem hafa valið í Innu fyrir næstu önn, þurfa ekki að innrita sig sérstaklega.
5. Brautaskipti: Nemendur, sem vilja skipta um braut, t.d. af almennri braut yfir á stúdentsbraut, þurfa að hafa samband við áfangastjóra sem allra fyrst.
6. Við viljum þakka nemendum okkar kærlega fyrir góð störf á önninni og óska ykkur góðs gengis í lokanámsmati annarinnar áður en við höldum út í sumarið.