Húslestur 13.11.2025

9. tbl. 37. árg. fimmtudaginn 13. nóvember 2025. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Arna Ýr Arnarsdóttir

1. Þriðja fjarvistartalning annarinnar. Viðmið 90% á tímabilinu. Þeir sem eru undir viðmiðinu fá sent bréf frá skólanum eða forráðamenn þeirra hafi þeir ekki náð 18 ára aldri.

Hér má sjá mætingarreglur FSH.

2. Vali fyrir vorönn 2026 er lokið fyrir dagskólanema. Þeim, sem hugsanlega gleymdu að velja er bent á að hafa samband við áfangastjóra. Haft hefur verið samband við nemendur á heilsunuddbraut og sjúkraliðabrú varðandi valið. Fjarnemar sem vilja velja fyrir næstu önn eru kvattir til þess að hafa samband við áfangastjóra. Ef þú hefur gleymt að velja viljum við biðja þig að hafa samband sem fyrst.

3. Próftafla haustannar 2025 liggur nú fyrir. Hægt var að skila inn athugasemdum til aðstoðarskólameistara til 10.nóvember. Hún telst því endanleg.

4. Nemendur, sem þjást af prófkvíða eða telja sig þurfa á sérúrræðum að halda við fyrirlögn prófa, er bent á að hafa samband við námsráðgjafa sem allra fyrst hafi þeir ekki nú þegar gert það.

5. Innritun fyrir dagskóla á vorönn 2026 hófst 1. nóvember og lýkur 1. sesember. Þeir sem hafa valið í Innu fyrir næstu önn þurfa ekki að innrita sig sérstaklega. Hægt er að sækja um í fjarnám til 12. janúar næstkomandi.

6. Miðannarmati er lokið. Hér má lesa um námsmat skólans og eru upplýsingar um miðannarmat þar á meðal. Nemendur eru hvattir til að skoða það vel. Haft verður samband við aðstandendur ólögráða nemenda sem hafa fengið D í einhverjum áfanga á miðannarmati eða þrjú eða fleiri C.

7. Brautaskipti: Nemendur sem vilja skipta um braut, t.d. af almennri braut yfir á stúdentsbraut, þurfa að hafa samband við áfangastjóra sem allra fyrst.