Fara í efni

Húslestur 04.04.2022

4. tbl. 33. árgangur mánudagurinn 4. apríl 2022. Ritstj. og ábm. Halldór Jón Gíslason

1. Þriðja fjarvistatalning annarinnar. Viðmiðið er 90 % mæting að teknu tilliti til veikinda og leyfa. Haft verður samband við þá nemendur sem eru undir í mætingu. Mætingarreglur FSH.

2. Vali fyrir haustönn 2022 lauk 25.mars síðastliðinn. Þeim sem hafa ekki valið, en vilja vera í námi á næstu önn, er bent á að hafa samband við aðstoðarskólameistara sem fyrst. Hér má sjá valframboð fyrir haustönn 2022.

3. Frestur til þess að gera athugasemd við próftöflu vorannar rann út 25. mars síðastliðinn. Próftafla telst nú endanleg. Hér má sjá próftöflu vorannar 2022. Prófareglur FSH má sjá HÉR. Athugið að í Innu getur hver nemandi séð upplýsingar þau lokapróf sem hann er sjálfur skráður í.

4. Nemendum, sem þjást af prófkvíða eða telja sig þurfa á sérúrræðum að halda við fyrirlögn prófa, er bent á að hafa samband við námsráðgjafa sem allra fyrst og alls ekki síðar en 27. apríl.

5. Umsókn um einingar fyrir félagsstörf. Hægt er að sækja um einingar fyrir félagsstörf skv. reglum um námsmat. Nemendum er bent á að kynna sér reglurnar vel! Sótt er um í tölvupósti til aðstoðarskólameistara. Umsóknarfrestur er til 27. apríl.

6. Innritun eldri nemenda fyrir haustönn 2022 hófst 15. mars og lýkur 22. apríl. Nemendur á vorönn 2022, sem hafa valið í Innu fyrir næstu önn, þurfa ekki að innrita sig sérstaklega.

7. Brautaskipti: Nemendur, sem vilja skipta um braut, t.d. af almennri braut yfir á stúdentsbraut, þurfa að hafa samband við aðstoðarskólameistara sem allra fyrst.

Getum við bætt efnið á síðunni?