1.tbl. 38.árg. föstudaginn 2. janúar 2026. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Arna Ýr Arnarsdóttir
Velkomin til starfa á nýju ári!
Húslestur hefur ýmsar upplýsingar að geyma.
Lesið hann vandlega.
Lesið einnig vel um brautalýsingar og áfanga á vef skólans.
Þá er oft ýmsar upplýsingar og tilkynningar að finna á tilkynningatöflu við nemendainngang.
Skrifstofa skólans opnar kl. 8:10 mánudaginn 5. janúar.
Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu, mánudaginn 5. janúar klukkan 10:00. Ath. engir örtímar þessa önn.
Starfsbraut byrjar mánudaginn 5. janúar kl 10:00.
Deildarstjóri starfsbrautar er Elsa Björk Skúladóttir
Anna Guðmundsdóttir - stuðningsfulltrúi á starfsbraut
Alexia A. Askelöf - stuðningsfulltrúi á starfsbraut
Sigurður Narfi Rúnarsson - kennari á starfsbraut
Smári Sigurðsson - kennari á starfsbraut
Athugið að skólagjöld þurfa að hafa verið greidd til þess að hægt sé að opna Innu.
Varðandi dagskrá annarinnar má nefna að vörðuvika verður haldinn 2. til 6. febrúar.
Dillidagar eru 9. til 13. mars.
Próf verða frá 11. til 21. maí og önninni lýkur með útskrift þann 23. maí.
Starfsfólk skólans
Skólameistari: Halldór Jón Gíslason. Viðtalstímar eftir samkomulagi.
Áfangastjóri og fjármálastjóri: Arna Ýr Arnarsdóttir. Viðtalstímar eftir samkomulagi.
Námsráðgjafi: Elín Pálmadóttir. Viðtalstímar verða auglýstir síðar.
Skólahjúkrunarfræðingur: Díana Jónsdóttir. Viðtalstímar á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13-14.
Skólaritari: Guðný Margrét Eyjólfsdóttir. Ritari er við kl. 8-15 mánudaga til fimmtudaga, föstudagar frá 8-12.
Umsjónarmaður húsnæðis: Ingvar Berg Dagbjartsson Viðtalstímar á mánudögum til fimmtudags frá 8-16.
Umsjónarmaður tölvukerfis: Róbert Bjarnason. Almennur viðverutími á mánud. kl. 10-11 og fimmtud. kl. 10-11.
Kennarar á vorönn 2026
Ásta Svavarsdóttir Íslenska, ÍSAN, kynjafræði og félagsfræði.
Björgvin Friðbjarnarson Stærðfræði, líffræði og efnafræði.
Elín Pálmadóttir Rannsókn, námstækni og íþróttir.
Eva Margrét Árnadóttir Umhverfis- og auðlindafræði, eðlisfræði, jarðfræði og efnafræði.
Karolína Kr. Gunnlaugsdóttir Líffræði, stærðfræði og saga.
Rakel Dögg Hafliðadóttir Sálfræði, stærðfræði og næringarfræði.
Sigurður Narfi Rúnarsson Rafíþróttir og landafræði.
Smári Sigurðsson Enska og þýska
Allir kennarar hafa viðtalstíma og verða þeir auglýstir síðar á töflu á nemendagangi.
Efnisyfirlit.
1. Umsjónakennarar og umsjónatímar
2. Inna og innuaðgangur
3. Húsnæði
4. Skólareglur
5. Töflubreytingar
6. Íþróttir
7. Kennsluvefur
8. Heilsunudd
9. Aðrar upplýsingar