Töflubreytingar H21

Skoðið stundatöflurnar ykkar vel. Ef þið hafið ekki fengið inn alla þá áfanga sem þið völduð geta ástæðurnar verið margvíslegar, t.d. að áfanginn er ekki kenndur, ekki er pláss í hóp, árekstar eru milli áfanga o.s.frv. Enn er hægt að bæta inn áföngum og taka út áfanga. Athugið að þessar töflubreytingar er eingöngu hægt að gera hjá aðstoðarskólameistara.

Viðtalstímar aðstoðarskólameistara vegna töflubreytinga:
Fimmtudaginn 19. ágúst kl. 08:15-12:00
Föstudaginn 20. ágúst kl. 8:15-12:00
Mánudaginn 23. ágúst kl. 8:15-12:00

Öllum töflubreytingum verður að vera lokið föstudaginn 27. ágúst!

 

Komið vel undirbúin í töflubreytingar. Notið stofntöfluna hér fyrir neðan til að finna hvenær áfangar eru kenndir.

Íþróttir á fyrsta námsári eru bæði bóklegar og verklegar. Nemendur á fyrsta námsári skulu mæta í íþróttatíma í íþróttahöll.

Ertu töflulaus?
Ef þú ert töflulaus gæti skýringin verið sú að þú ert ekki búin(n) að greiða innritunargjaldið. 

Taflan þín er í Innu og þú færð hana um leið og þú gerir upp skuldina. ATH að Innuaðgangur er lokaður þar til innritunargjaldið er greitt!
Annar möguleiki er að þú hafir ekki skilað inn vali á síðustu önn. Ef svo er þarft þú nauðsynlega að tala við aðstoðarskólameistara á töflubreytingatíma.
Þriðji möguleikinn er að þú sért ekki með virkan Íslykil eða rafræn skilríki. Sæktu um nýjan á island.is.
Ef ekkert af þessu passar er möguleiki að Inna sé að stríða okkur. Hafðu samband við aðstoðarskólameistara á töflubreytingatíma.

Árekstrar
Árekstur kallast það þegar tveir áfangar eru skráðir í sama tímann. Ef tveir áfangar eru skráðir á sama tíma í stundatöflu gildir taflan sem árekstraheimild. Nemendur skulu hafa samband við báða viðkomandi kennara og ákveða kennararnir hvernig nemandinn mætir í þessa tíma.

Örtímatafla H21