Undanfarareglur í nýju kerfi

Í sviga aftast í námsgreinarheiti eru tölur sem gefa upplýsingar um undanfara.

Dæmi:
ÍSLE1MB05(02)
ÍSLE2MÁ05(11)
ÍSLE2BÓ05(21)
ÍSLE3MI05(31)
ÍSLE2EE05(32)

Fyrri talan í sviganum segir til um undanfara. Þannig verður áfangi sem byrjar á 1 að koma á undan áfanga sem byrjar á 2 og nemandi getur ekki skráð sig í áfanga sem byrjar á 3 án þess að vera búinn með áfanga sem byrja á 1 og 2. Í dæminu af íslenskunni hér að framan má sjá að fyrstu þrír áfangarnir verða að koma í þeirri röð sem þarna er tilgreind, þ.e. ÍSLE2MÁ05(11) - ÍSLE2BÓ05(21) - ÍSLE3MI05(31).

Seinni talan í sviganum segir til um jafngildisáfanga. Ef tveir áfangar hafa sömu tölu fremst í sviga, skiptir ekki máli hvor þeirra er tekinn á undan. Þannig skiptir t.d. ekki máli hvort ÍSLE3MI05(31) er tekinn á undan eða á eftir ÍSLE3EE05(32).