Húslestur 27.04.2021

5. tbl. 31. árg. Þriðjudaginn 27. apríl 2021. Ritstj. og ábm. Halldór Jón Gíslason

Efni:

1. Fjórða Fjarvistartalning annarinnar. Viðmiðið er 90 % mæting að teknu tilliti til veikinda og leyfa. Haft verður samband við þá nemendur sem eru undir í mætingu. Mætingarreglur FSH.

2. Vali fyrir haustönn 2021 lauk 15.mars síðastliðinn. Þeim sem hafa ekki valið, en vilja vera í námi á næstu önn, er bent á að hafa samband við aðstoðarskólameistara sem allra fyrst. Hér má sjá valframboð fyrir haustönn 2021.

3. Próftafla vorannar 2021 telst nú endanleg. Prófareglur FSH má sjá HÉR. Athugið að í Innu getur hver nemandi séð upplýsingar um þau lokapróf sem hann er sjálfur skráður í.

4. Innritun eldri nemenda, fæddra árið 2002 eða fyrr, fyrir haustönn 2021 hófs 5. apríl og lýkur 31. maí. Nemendur á vorönn 2021, sem hafa valið í Innu fyrir næstu önn, þurfa ekki að innrita sig sérstaklega.

5. Brautaskipti: Nemendur, sem vilja skipta um braut, t.d. af almennri braut yfir á stúdentsbraut, þurfa að hafa samband við aðstoðarskólameistara sem allra fyrst.

6. Við viljum þakka nemendum okkar kærlega fyrir góð störf á önninni og óska ykkur góðs gengis í lokanámsmati annarinnar áður en við höldum út í sumarið.