Húsnæði V22

Húsnæði skólans
Í kennaraálmu eru skrifstofur skólameistara, aðstoðarskólameistara, námsráðgjafa og skólahjúkrunarfræðings, kennarastofa og vinnuherbergi kennara. Vinnuherbergi Gunnars Baldurssonar er þó við hliðina á stofu 9. Skrifstofa skólans er framan við kennaraálmu og þar hefur ritari og fjármálastjóri aðsetur. Umsjónarmaður húsnæðis hefur aðstöðu í herbergi gegnt skrifstofu ritara. Nemendur eru beðnir að virða viðtalstíma kennara. Notfærið ykkur pósthólf þeirra sem eru í kennaraálmu. Þau er sérstaklega ætluð fyrir nemendur sem þurfa að koma skilaboðum til kennara eða skila verkefnum. Aðstaða nemenda, t.d. matar- og setustofa, er í kjallara í aðalkennsluálmu.

Kennslustofurnar
Stofur 4 og 5 eru á efri hæð í aðalkennsluálmu.
Stofur 7, 8 og 9 (raungreinastofa) eru á jarðhæð í kennsluálmu, stofa 7 næst anddyri en stofa 9 fjærst.
Stofur 11 (rafíþróttastofa) og 12 (myndmenntastofa) eru í kjallara kennaraálmu.
Stofa 10 er fyrir ofan nemendainngang. Stofa 10 verður ekki notuð í kennslu í vetur
Stofa ÍÞ er í íþróttahúsi.
Nýtt bókasafn og aðstaða til náms er nú staðsett í miðrými kennsluálmu.

Skólasóknarreglur