Reglur um notkun gervigreindar í skólastarfi

Tóku gildi 1. september 2026.

Gervigreind getur verið gagnlegt námstæki þegar hún er notuð af ígrundun og á öruggan og heiðarlegan hátt. Þessar reglur útskýra hvernig nemendur mega nota gervigreind á sama tíma og þeir vernda gildi eigin náms.

Tilgangur
Reglunum er ætlað að tryggja ábyrga, gagnsæja og siðferðilega notkun gervigreindar í námi og kennslu. Þær efla gagnrýna hugsun, sjálfstæða vinnu og stafræna hæfni nemenda í samræmi við góðar starfsvenjur.

Hvenær má nota gervigreind
Nemendur mega nota gervigreind sem hjálpartæki við hugmyndavinnu, útskýringar, greiningu og textasköpun, liggi samþykki kennara fyrir.
Notkun gervigreindar í prófum, lokaverkefnum eða öðrum matsverkefnum er aðeins heimil með skýru samþykki kennara.

Ábyrgð nemenda
Þegar gervigreind er notuð er þess vænst að nemendur:
Meti gæði og áreiðanleika svara með gagnrýninni hugsun og sannreyni upplýsingar eftir þörfum.
Geri grein fyrir allri notkun gervigreindar í verkefnum, t.d. með athugasemd eða heimildaskrá.
Beri fulla ábyrgð á öllu efni sem þeir skila, óháð notkun gervigreindar

Akademísk heilindi
Nemendur mega ekki nota gervigreind til að falsa efni, búa til rangar heimildir eða gefa villandi mynd af vinnu sinni. Nemendur verða alltaf að taka fram ef og hvernig þeir nota gervigreind í verkefnavinnu. Gervigreind eða önnur tæki mega ekki leysa verkefni sem ætlað er að endurspegla persónulega hæfni nemenda.

Öryggi og velferð
Nemendur skulu vera ábyrgir og ekki setja viðkvæmar persónuupplýsingar inn í gervigreind. Hana má ekki nýta í annarlegum tilgangi. Nemendur skulu beita gagnrýninni hugsun við notkun gervigreindar til að tryggja fagleg vinnubrögð og réttmæti þeirra gagna sem unnið er með.

Viðurlög
Brot á reglum geta leitt til þess að endurvinna þurfi verkefni í samræmi við reglur skólans um verkefnaskil. Endurtekin brot geta kallað á viðbrögð í samræmi við reglur um námsmat, námsframvindu og próf.


Kemur til endurskoðunar: September 2027