Húslestur 04.03.2020

3. tbl. 30. árgangur miðvikudaginn 4.mars 2020. Ritstj. og ábm. Halldór Jón Gíslason

1. Önnur fjarvistatalning annarinnar. Viðmið var 90% mæting. Þeir sem voru undir viðmiðinu hafa þegar fengið senda viðvörun frá skólanum eða forráðamenn þeirra hafi þeir ekki náð 18 ára aldri.
Mætingarreglur FSH

2. Val fyrir haustönn 2020 lýkur 20. mars nk. Valframboð má sjá á heimasíðu skólans eða með því að ýta HÉR. Athugið að þótt áfangi sé í boði, þýðir það ekki endilega að hann verði kenndur. Eftir því sem fleiri velja áfanga aukast líkurnar á að hann verði kenndur. Það er mikilvægt að nemendur nýti vinnustundir mjög vel til þess að velja. Leiðbeiningar um val í Innu er að finna HÉR.
Ath. að þeir sem ekki skila vali í Innu verða ekki með í stundatöflugerð fyrir haustönn 2019. Þannig gildir valið sem umsókn um skólavist.
Hægt er að gera námsáætlun í Innu fyrir skóladvölina. Umsjónarkennarar geta kallað á einstaka nemendur eða hóp nemenda í viðtalstíma vegna vals.
Upplýsingar um námsbrautir skólans
Undanfarareglur í nýju kerfi

3. Drög að próftöflu vorannar 2020 eru komin á heimasíðuna. Athugasemdir þurfa að hafa borist aðstoðarskólameistara fyrir 23. mars.

4. Frestur til að segja sig úr áföngum
Í kjölfar breyttra reglna um námsmat í framhaldsskólum hefur verið ákveðið að setja frest á skráningu nemenda úr áföngum. Fresturinn er til 14. mars. Ef nemandi hættir í áfanga eftir þann tíma verður það skráð sem fall í viðkomandi áfanga.

5. Brautaskipti: Nemendur sem vilja skipta um braut, t.d. af almennri braut yfir á stúdentsbraut, þurfa að hafa samband við aðstoðarskólameistara sem allra fyrst.