Píramus & Þispa frumsýndi “Mean girls” í vikunni

Leikfélag skólans, Píramus & Þispa, hefur frumsýnt leikverkið Mean Girls, byggt á samnefndri vinsælli Hollywood-mynd frá árinu 2004. Stór sýningarhelgi er framundan og nemendur hafa lagt mikið á sig við undirbúninginn. Karen Erludóttir leikstjóri hefur sannarlega unnið kraftaverk með þessum hæfileikaríka hópi og nemendur hlakka nú til að sýna áhorfendum afraksturinn. Sjáumst í leikhús!

Hægt er að panta miða í tölvupósti: piramusogthispa26@gmail.com