Núverandi og fyrrverandi nemendur FSH á leið í Þjóðleikhúsið!

Eins og alþjóð ætti að vera orðið kunnugt mun Leikfélag Húsavíkur fara með uppsetningu sína af verkinu Rocky Horror á stóra svið Þjóðleikhússins 13. júní næstkomandi. Verkið var valið athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2026 af valnefnd Þjóðleikhússins. Það er gaman að segja frá því að þarna munu nokkrir núverandi og fyrrverandi nemendur FSH stíga á stóra svið Þjóðleikhússins. Þetta sýnir glögglega hversu öflugt menningarlífið á Húsavík er og hversu sterkt grasrótarstarf er unnið í leikfélaginu FSH, Píramus og Þispu. Við óskum nemendum okkar til hamingju með þetta frábæra tækifæri og hlökkum til að fylgjast með leiksigrum þeirra í framtíðinni.

Enn eru miðar lausir á aukasýningu, hægt er að nálgast þá hér.