Bjargráður í heimsókn í FSH í dag

Bjargráður, sem var stofnað árið 2013, hefur það að markmiði að fræða sem flesta um endurlífgun. Starfsemi félagsins er alfarið unnin með sjálfboðaliðastarfi. Sérstök áhersla er lögð á að fræða nemendur á framhaldsskólastigi um endurlífgun. Fræðslan fer fram í fyrirlestraformi ásamt verklegum æfingum með skyndihjálpardúkkum.

Í vinnustund í dag komu til okkar fjórar stúlkur frá Bjargráði. Þrjár af þeim eru nemendur á fyrsta ári í læknisfræði ásamt umsjónarstúlku.
Nemendur fengu fræðslu og hnoðuðu skyndihjálpardúkkur taktfast við lagið Staying alive.
Augljóst var að nemendur könnuðust við fyrstu viðbrögð við endurlífgun og stóðu sig öll með mikilli prýði.