Síðastliðinn föstudag tók Elísabet Ingvarsdóttir, nemandi á þriðja ári, þátt í Vísinda- og nýsköpunarþingi fyrir hönd FSH.
Þingið var haldið í fyrsta skipti í ár, en Vísinda- og nýsköpunarráð stóð að þinginu í samstarfi við forsætisráðuneytið, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið.
Á þinginu kom saman ungt fólk, fulltrúar vísindasamfélagsins, atvinnulífsins og stjórnvalda til að ræða hvernig þekking, vísindi og nýsköpun geta stuðlað að lausnum á áskorunum framtíðarinnar.