Póstkerfi skólans komið í lag.

Við sögðum frá því í morgun að póstkerfi skólans lægi niðri, þetta hafði áhrif á tölvupóst nemenda og starfsfólks. Búið er að leysa málið og vonandi verður þetta ekki frekar til vandræða.

Þetta hafði áhrif á svör við erindum sem okkur bárust á þessum tíma og við biðjumst innilega velvirðingar á því.