Upphaf haustannar 2023

Nú er sumarleyfið senn á enda og skólinn að hefjast á ný.

Skólasetning verður á fimmtudaginn 17. ágúst kl. 10.00. Í beinu framhaldi hefst kennsla í örtímum, sjá örtímatöflur á ganginum. Í örtímum verður farið yfir starf annarinnar og ýmsar upplýsingar sem nauðsynlegar eru í upphafi skólastarfsins.

Kennsla samkvæmt stundaskrá hefst síðan kl. 8.10, mánudaginn 21. ágúst 2023

Á fimmtudag og föstudag verður Aðalgeir Sævar, tölvumaðurinn okkar, við frá kl. 10.00-12.00, öllum nemendum til aðstoðar með uppsetningu forrita í tölvurnar ykkar. Mikilvægt er að nota þá þjónustu.

Hér er slóð á skóladagatal 2023-2024

Við hlökkum til að sjá ykkur og hefja nýja önn.