Skólameistarar samankomnir í FSH.
Dagana 5. og 6. júní síðastliðinn var ársfundur Skólameistarafélags Íslands (SMÍ) haldinn á Húsavík. Á fimmtudegi var fundað um ýmsar áskoranir og mál er varða framhaldsskóla landsins auk þess sem meðlimir SMÍ fengu kynningu á skólanum okkar. Að fundi loknum ferðuðust meðlimir SMÍ um bæinn og fengu að njóta ýmissar afþreyingar sem hér er í boði. Um kvöldið var svo haldinn kvöldverður á Fosshótel Húsavík þar sem meðal annars kvöddu skólameistarar sem eru að láta að störfum nú í sumar. Á föstudagsmorgni var svo haldinn hefðbundinn aðalfundur SMÍ áður en gestir héldu heim á leið.