Rocket League mót NEF

Í gærkvöldi, fimmtudaginn 10. febrúar hélt NEF mót í Rocket League tölvuleiknum í sal framhaldsskólans. Keppt var á tveimur skjám og voru sjö lið skráð til keppni.

NEF bauð upp á pizzu og skapaðist mjög góð stemning.

Tryggvi og Borgar báru sigur úr býtum að þessu sinni.