Rafíþróttir komnar á fullt í FSH

Nemendur við störf
Nemendur við störf

Á haustönn 2021 fórum við í Framhaldsskólanum á Húsavík á stað með nám í rafíþróttum í fyrsta sinn.

Við undirbúning námsins vorum við í virku samtali við Rafíþróttasamtök Íslands. Við höfum komið á fót fyrsta flokks aðstöðu til kennslu í rafíþróttum í húsnæði skólans og munum halda áfram að bæta hana á næstu árum.

Nemendur virðast vera mjög ánægðir með námið og eru kennslustundir oft mjög líflegar.

Námið samanstendur ekki einungis af hefðbundnum rafíþróttum og tölvuleikjaspilun heldur læra nemendur um markmiðasetningu, viðburðastjórnun, þjálfun, sögu, sálfræði, fjölmiðlafræði, ensku, íslensku og líffræði ásamt öðru sem tengist heimi tölvuleikjanna og einstaklingnum sjálfum.

Það er okkar von að þarna finni nemendur samsvörun með námsefninu og námið muni nýtast sem hagnýtur grunnur inn í framtíðina.

Námið er hugsað innan opinnar stúdentsbrautar eða sem val fyrir aðra nemendur.