Pepp frá NEF fyrir prófatíð

Síðastliðinn föstudag fór stjórn Nemendafélags Framhaldsskólans á Húsavík eða NEF rúnt um bæinn og gáfu samnemendum sínum jólaglaðning með hvatningu fyrir undirbúning lokaprófa.

Á Instagram síðu NEF stóð:

,,Jólasveinarnir í NEF tóku rúnt um bæinn í kvöld og gáfu nemendum jólaglaðning. Gangi ykkur vel í prófum elsku FSH-ingar! Hlökkum rosalega til að sjá ykkur (vonandi) eftir jól! Jólakveðja frá NEF''

Frábært framtak hjá NEF, vonum að þetta gefi nemendum aukna hvatningu inní prófatíð!