Nóvembermánuður er handan við hornið með öllum sínum gylliboðum og kauphlaupum. Nóvember er einn neysluríkasti mánuður ársins með fjölbreyttum tilboðsdögum á borð við svartan föstudag, netmánudag, dag einhleypra og þar fram eftir götunum. Ýmiss konar auglýsingar og kostaboð kalla á athyglina með þeim undirtóni að þú gætir verið að missa af einhverju. En þurfum við á þessu dóti að halda? Er hugurinn tættur yfir öllu áreitinu? Er kannski önnur og betri leið sem sparar okkur peninga, er umhverfisvænni og stuðlar að hugarró?
Landvernd og Grænfáninn standa nú fimmta árið í röð fyrir hvatningarátakinu Nægjusamur nóvember sem snýst um að hægja á neysluhraðanum, finna verðmæti í því sem við eigum nú þegar og leita leiða til að lifa í sátt við náttúru og nærumhverfi. Átakið er mótsvar við neysluhyggju og hugmyndinni um að okkur vanti stöðugt eitthvað. Við viljum nálgast þessa hugsun á jákvæðan og skapandi hátt með það að markmiði að stuðla að velferð og vellíðan.
Nægjusemi er hugarfarsbreyting sem er ókeypis og skilar strax árangri. Hún stuðlar að innri ró og getur ýtt undir sköpunargleðina. Með Nægjusömum nóvember snúum við aftur í grunngildin og leitum hamingjunnar innra með okkur frekar en að eltast við hana í ytri aðstæðum eða eignum.
Við hvetjum ykkur til þess að fylgjast með á vefsvæði átaksins Nægjusamur nóvember 2026 og á samfélagsmiðlum Landverndar og Grænfánans sem við munum nota til hvatningar og miðlunar. Einnig er velkomið að deila með okkur ykkar verkefnum og merkja/tagga á samfélagsmiðlum.
Hægt er að skrá sig hér í átakið til að fá reglulega hvatningu, hugmyndir og innblástur fyrir Nægjusaman nóvember.
Njótum þess að vera nægjusöm saman í nóvember 💜
Grænfáninn og Landvernd