Múri ehf. kom færandi hendi

NEF liðar ásamt Rakel Dögg
NEF liðar ásamt Rakel Dögg

Nemendafélag Framhaldsskólans á Húsavík (NEF) fékk heldur betur góða gjöf á dögunum. Múri ehf kom þá færandi hendi með gasgrill til gjafar fyrir nemendur Framhaldsskólans á Húsavík. NEF nýtti því tækifærið þennan síðasta dag vetrar til þess að vígja grillið og buðu nemendum og starfsfólki upp á pylsur og drykki.

Það er óhætt að segja að við höfum verið heppin með veður.

Framhaldsskólinn á Húsavík þakkar Múra ehf kærlega fyrir gjöfina.