Mannréttindaskólar ársins 2020

Við erum afar stolt af nemendum okkar, sem lögðu Amnesty International svo einarðlega lið með undirskriftum sínum í árlegri herferð Amnesty International ÞITT NAFN BJARGAR LÍFI. Frumkvæði, samvinna og hugrekki eru einkunnarorð nemenda Framhaldsskólans á Húsavík og það er sannarlega sýnt í verki hér. 

SIGURVEGARAR ÁRSINS 2020

Grunn- og framhaldsskólar landsins stóðu sig vel í keppninni um mannréttindaskóla ársins fyrir árlegu herferð Amnesty International ÞITT NAFN BJARGAR LÍFI. Þrátt fyrir samdrátt í söfnun undirskrifta vegna kórónuveirufaraldursins söfnuðu skólar landsins í heildina 7907 undirskriftum. Þar af komu 2502 undirskriftir frá grunnskólum og 5407 undirskriftir frá framhaldsskólum.

TIL HAMINGJU HÁTEIGSSKÓLI! Nemendur Háteigsskóla söfnuðu flestum undirskriftum í grunnskólakeppninni.

TIL HAMINGJU KVENNASKÓLINN Í REYKJAVÍK! Nemendur Kvennaskólans söfnuðu flestum undirskriftum í framhaldsskólakeppninni.

TIL HAMINGJU ALÞJÓÐASKÓLINN Á ÍSLANDI! Nemendur Alþjóðaskólans söfnuðu flestum undirskriftum miðað við nemendafjölda í grunnskólakeppninni.

TIL HAMINGJU FRAMHALDSSKÓLINN Á HÚSAVÍK! Nemendur Framhaldsskólans á Húsavík söfnuðu flestum undirskriftum miðað við nemendafjölda.

 

Föstudaginn 12. febrúar næstkomandi býður Amnesty International mannréttindaskólunum fjórum sem sigruðu keppnina í ár á hádegistónleika með tónlistarmanninum og gleðipinnandum Jóni Jónssyni. Hann mun flytja lög og tilkynna formlega um árangur sigurvegaranna í ár!

Auglýst nánar síðar.