Innritun fyrir haustönn 2022

Innritun fyrir haustönn 2022 er hafin á menntagatt.is.

Innritun er með örlítið breyttu sniði frá því í fyrra en nú er ekkert sérstakt forinnritunartímabil.

Innritun er sem hér segir.

  1. Innritun á starfsbrautir fyrir fatlaða nemendur fer fram 1.-28. febrúar.
  2. Innritun eldri nemenda fer fram 15. mars til 22. apríl.
  3. Innritun nemenda í 10. bekk fer fram 25. apríl til 10. júní.

Opið verður fyrir umsóknir eldri nemenda í fjarnám fram til 31. ágúst næstkomandi.