Hópur sex nemenda úr Framhaldsskólanum á Húsavík fór nýverið í sex daga fræðslu- og kynnisferð til Finnlands, í fylgd tveggja kennara. Áfangastaðurinn var Savukoski, lítið og afskekkt sveitarfélag í Lapplandi þar sem íbúar sýslunnar eru um 980 manns. Ferðin var styrkt af Erasmus + sem er styrkjaáætlun ESB fyrir mennta-, æskulýðs- og íþróttamál.
Markmið ferðarinnar var að heimsækja nemendur í skólann Savukoski Lukio - skóli sem heimsótti okkur í FSH fyrir tveimur árum, einnig á vegum Erasmus+ og kynnast þeirra nærumhverfi og ræða áhrif loftslagsbreytinga á lífríki á afskekktum svæðum. Okkar nemendur voru því búin að kynna sér viðfangsefnið fyrir og búa til kynningar sem þau kynntu snilldar vel fyrir finnska nemendur. Á móti voru gestgjafar okkar með kynningar um sömu málefni í Lapplandi. Þrátt fyrir að Húsavík og Savukoski deili ákveðnum einkennum sem jaðarsvæði, upplifðu nemendur einnig skýran mun á samfélögunum, meiri agi í þeirra samfélagi, svo þótti nemendum okkar Savukoski minna samheldið samfélag en við erum vön hér heima.
Aðstæður í Lapplandi voru ólíkar því sem nemendur eiga að venjast. Mikill kuldi getur ríkt á svæðinu, allt niður í -40 gráður á veturna en allt að +30 gráður á sumrin, og náttúran einkennist af víðáttumiklu skólendi, djúpri kyrrð og vera nánast algjörlega laus við öll umhverfishljóð (ekki einu sinni hljóð í vindi!).

Í ferðinni tóku nemendur þátt í fjölbreyttum verkefnum og útivist. Meðal annars fóru þeir í um tíu kílómetra göngu í snjó í Pyhä–Luosto þjóðgarðinum, þar sem djúpur snjór gerði þeim aðeins erfitt fyrir. Þeir prófuðu einnig hjólreiðar, fóru í göngutúra, spiluðu fótbolta með finnsku nemendunum og nutu hefðbundinnar finnskrar saunu. Þá fengu þeir að smakka staðbundinn mat, þar á meðal soðna hreindýratungu og nánast í hverri máltíð kom hreindýr við sögu.
Hópurinn heimsótti einnig ametýstnámu ásamt öðrum ferðamönnum og stoppaði á áhugaverðu náttúrusafni; Pyhä–Luosto Visitor and Culture Center. Þar að auki kynntust þeir gönguskíðamenningu svæðisins, en brautirnar þar ná allt að 100 kílómetrum innan um skólendið – svolítið ólíkt okkar gönguskíðasvæði 😊

Á heimleiðinni fengu nemendur heilan dag í Helsinki. Þar heimsóttu þeir sendiráð Íslands í Helsinki, sem einnig er sendiráð gagnvart Eistrasaltsríkjunum þremur; Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Þar fengu nemendur kynningu á starfi þess frá Harald Aspelund, sendiherra. Hlutverk sendiráðsins og verkefni komu nemendum mjög á óvart og komu nemendur reynslunni ríkari eftir heimsóknina. Einnig var gengið um miðborgina, verslað og snætt á steikhúsi – sko 360 gramma!
Ferðin var afar vel heppnuð. Nemendur voru heppnir með veður, nutu fjölbreyttrar dagskrár og lýstu ánægju með bæði upplifunina og matinn. Ferðin styrkti tengsl milli skólanna, milli nemenda og veitti nemendum dýrmæta innsýn í líf og áskoranir á afskekktum norðurslóðum.
