Heimsókn nemenda úr 10.bekk Borgarhólsskóla

Síðastliðinn mánudag fengum við nemendur úr 10. bekk Borgarhólsskóla í heimsókn til okkar.

Nemendafélag FSH (NEF) sá um kynninguna og stóð sig með prýði. Nemendur fengu kynningu á námsframboðinu, skólanum, félagslífinu og fóru svo í gönguferð um skólann með NEF.  Að lokum var boðið upp veitingar.

Við þökkum nemendum Borgarhólsskóla kærlega fyrir komuna!