Halldór Jón hefur verið skipaður skólameistari FSH

Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Halldór Jón Gíslason í embætti skólameistara Framhaldsskólans á Húsavík til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.

Sjá frétt Stjórnarráðsins hér

Halldór Jón þekkir allt starf FSH mjög vel, var hér nemandi og lauk stúdentsprófi frá FSH.  Hann hefur starfað við skólann frá árinu 2017 sem kennari, áfangastjóri og aðstoðarskólameistari. Halldór Jón er með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í mannauðsstjórnun auk kennsluréttinda í framhaldsskóla frá sama skóla. Hann hefur lokið BA gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands.

Valgerður Gunnarsdóttir skólameistari óskar fyrir hönd starfsfólks og nemenda FSH, Halldóri innilega til hamingju með skipunina og farsældar í starfi.