H-in til heilla

Í dag kom til okkar Kristín Sigurðardóttir, slysa-og bráðalæknir og hélt erindi fyrir nemendur, með allskyns streitu- og seiglu ráðum. 

Fyrirlesturinn H-in til heilla var allt í senn fræðilegur, hagnýtur og skemmtilegur.
Lífið er ekki alltaf auðvelt og það getur verið bæði erfitt og flókið að vera manneskja.
Það er margt sem við getum gert, til að auka seiglu okkar og streituþol 🙂
Mikilvægt efni sem á erindi dag, í umhverfi sem tekur sífellt hraðari breytingum!
 
Kristín mun endurtaka leikinn kl 17:00 í boði foreldrafélaga FSH og Borgarhólsskóla. Viðburðurinn er opinn öllum foreldrum á Húsavíkursvæðinu.
 
Kristín Sigurðardóttir, slysa-og bráðalæknir, er með heildræna sýn á heilsu og hefur alla tíð sem læknir sinnt heilsueflingu, forvörnum og kennslu. Hún er aðjúnkt við Læknadeild HÍ, gestakennari við HR og situr í Lýðheilsuráði Læknafélags Íslands. Kristín er vinsæll fyrirlesari sem hefur fjallað um heilsutengd málefni á fjölmörgum vinnustöðum og ráðstefnum.
Hún rekur fyrirtækið Á heildina litið sem stendur reglulega fyrir námskeiðum og málþingum, þar sem fókuserað er á líðan og heilsu, m.a. hvernig hægt er að nýta streituna til góðs í síbreytilegu umhverfi og efla seiglu. Sem eru lykilatriði til að dafna í lífi og starfi 🙂