Grautur, göngutúr og stígvélakast

Nú stendur yfir íþróttavika Evrópu dagana 23. til 30. september. Markmið vikunnar er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings.

Íþróttavika hófst í gær, og bauð heilsuráð FSH uppá hafragraut í morgunmat í tilefni dagsins. Svo fóru nemendur út í stígvélakast og í göngutúr. 

Næstu daga verður frekari dagskrá sem má sjá hér að neðan.