Góðir vinir í heimsókn

Mánudaginn 26. maí fengum við heimsókn frá góðum vinum okkar í Menntaskólanum á Tröllaskaga. Heimsóknin var liðiur í endurmenntun kennara þar en á hverju skólaári eru starfsdagar í lok skólaársins sem tileinkaðir eru endurmenntun. Þau ákváðu að leita ekki langt yfir skammt og komu til Húsavíkur og fræddustu um skólann okkar. Fundað var með starfsfólki og ýmsar áskoranir fyrir skóla á landsbyggðinni ræddar, síðan var farið á Gamla Bauk í hádegismat og svo aftur til fundarhalda. Mjög góður og fræðandi dagur. Við þökkum Menntaskólanum á Tröllaskaga kærlega fyrir heimsóknina.