Geðlestin og Emmsjé Gauti í heimsókn

Í dag fengum við góða heimsókn frá Geðlestinni og Emmsjé Gauta.

Geðlestin er geðfræðsla fyrir nemendur í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla sem byggir á þeirri staðreynd að við búum öll við geð rétt eins og við erum með hjarta. Á lífsleiðinni er mjög líklegt að við lendum í mótvind og þurfum jafnvel að leita okkur aðstoðar. Öflug geðrækt frá unga aldri út lífið er besta ráðið til að takast á við þær áskoranir sem lífið færir okkur. Geðlestin er samstarfsverkefni Geðhjálpar og Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og er styrkt af félags- og heilbrigðisráðuneytunum.

Emmsjé Gauti lauk fræðsluerindinu með nokkrum af lögum sínum.

Við þökkum þeim kærlega fyrir fræðsluna og skemmtunina.