Nýr áfangi verður í boði á vorönn 2027.
Áfanginn heitir NÝSK1GK05(11) - Fab Lab Go-kart
Í áfanganum vinna nemendur að hönnun, smíði og prófun rafknúins go-kart bíls. Verkefnið byggir á samvinnu nemenda þar sem þeir mynda lið og taka þátt í öllu ferlinu frá hugmyndavinnu og hönnun til smíði og keppni. Áhersla er lögð á notkun stafrænnar hönnunar, sérstaklega þrívíddar teikniforrita, þar sem nemendur teikna alla íhluti bílsins og útbúa smíðateikningar.
Nemendur kynnast samþættingu ólíkra faggreina, svo sem málmsmíði, rafiðngreinum og tækniteikningu, og læra að nýta búnað Fab Lab smiðja við framleiðslu. Verkefnið felur í sér lausnamiðaða nálgun þar sem engin ein rétt niðurstaða er fyrirfram gefin og nemendur þurfa að takast á við raunveruleg vandamál sem upp koma í ferlinu.
Nánari áfangalýsing NÝSK1GK05(11) má finna hér