Laus er til umsóknar staða skólaritara við Framhaldsskólann á Húsavík

Skólaritari

Framhaldsskólinn á Húsavík auglýsir eftir skólaritara í 75% starfshlutfall.

Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2025

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Húsavíkur og Framhaldsskólans á Húsavík.

 

Skólaritari sér um öll dagleg skrifstofustörf, símavörslu, útgáfu tilfallandi vottorða, gerð ýmissa skýrslna, fjarvistarskráningu nemenda og starfsfólks í Innu, hefur umsjón með kennsluvef skólans (Moodle) og heimasíðu hans, sér um bókasafn skólans og skjalavistun, auk annars í samræmi við starfslýsingu. Skólaritari vinnur í nánu samstarfi við skólameistara og aðrar stjórnendur og situr ýmsa fundi og ritar fundargerðir.

Skólaritari hefur mikil samskipti nemendur og starfsfólk og aðstoðar við ýmis viðvik. Hann þarf að vera lipur í mannlegum samskiptum, glaðlyndur og sveigjanlegur í sínum störfum.

Umsækjandi þarf að hafa lokið stúdentsprófi, hafi mjög góða kunnáttu í íslensku og ensku og mjög góða færni í ýmsum tölvuforritum, s.s. word og exel. Umsækjandi hafi hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til 10. júlí 2025

Umsóknir sendist skólameistara á netfangið valgerdur@fsh.is

Ekki er nauðsynlegt að sækja um á sérstökum eyðublöðum.

Allar nánari upplýsingar, s.s. um ítarlegri starfslýsingu veitir skólameistari í síma 8668669

 

Skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík