Dillidagar 2026

Dillidagar 2026 hófust með trompi á mánudaginn! 

Dillidagar eru uppbrotsdagar sem eru haldnir árlega í FSH og hafa það að markmiði að hafa gaman saman, hrista saman nemendur, efla hópinn og taka hlé frá hefðbundinni stundatöflu. Stjórn Nemendafélags skólans sér um að skipuleggja smiðjur og viðburði á Dillidögum. 

Nemendum var í byrjun vikunnar skipt í lið og hafa síðustu daga keppt í allskyns þrautum og safnað svokölluðum rokkstigum. 

Við hvetjum áhugasama að fylgja NEF - Nemendafélag Framhaldsskólans á Húsavík á facebook og instagram undir nafninu neffsh 😄 https://www.instagram.com/neffsh/

Dillidögum lýkur með árshátíð NEF á morgun.