Framhaldsskólanum á Húsavík verður slitið við hátíðlega athöfn í Húsavíkurkirkju laugardaginn 23. maí kl. 13.00
Brautskráðir verða nýstúdentar af:
náttúruvísindabraut
félags- og hugvísindabraut
opinni stúdentsbraut
Einnig verða útskrifaðir nemendur af:
starfsbraut
heilsunuddbraut
sjúkraliðabrú
Verið hjartanlega velkomin að gleðjast með okkur á þessum fallega og mikilvæga hátíðisdegi í starfi skólans.
Að lokinni athöfn er opið hús og kaffiboð í Framhaldsskólanum á Húsavík
Framhaldsskólinn á Húsavík
-skólinn okkar-