Brautskráning 2023

Þann 20. maí síðastliðinn voru 21 nemandur útskrifaðir frá Framhaldsskólanum á Húsavík við hátíðlega athöfn í Húsavíkurkirkju.

Háttíðarræður fluttu Valgerður Gunnarsdóttir skólameistari, Halldór Jón Gíslason aðstoðarskólameistari, Elín Pálmadóttir fyrir hönd 25 ára stúdenta, Brynja Björk Höskuldsdóttir og Agnes Björk Ágústsdóttir fyrir hönd nýstúdenta.

Tónlistaratriði voru flutt af Friðriku Bóel Ödudóttir nýstúdent og Bóasi Gunnarssyni.

Að þessu sinni útskrifuðust 10 heilsunuddarar, 1 af starfsbraut og 10 stúdentar.

Mikill fjöldi fyrirtækja og samtaka komu að því að veita nemendum gjafir fyrir góðan námsárangur og félagsstörf í þágu skólans þetta árið og sýna þannig stofnuninni og nemendum mikla velvild.

Júlía Rós Szczodrowska Róbertsdóttir útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn á stúdentsprófi að þessu sinni.

Júlía Rós Dúx FSH 2023

Fleiri myndir frá brautskráninginu 2023 eru væntanlegar.